Betlarinn bíður

Hann bíður með útrétta höndina.  Hann vonar að yfirmaður  hans (stjórnandi AGS)  kasti í hann beini, hvaða beini sem er.  Hann ætlar að stökkva á beinið, og éta það alveg aleinn.  Mér finnst hann Steingrímur vera á annarri bylgjulengd en við hin sem búum hérna á Íslandi. 

 Stjórnin er úr takti við þjóðina. 

Það er áætlun stjórnarinnar að setjast að samningaborði Breta og Hollendinga til þess að fá að borga skatta til þeirra, skatta sem þeim ber engin skylda til þess að borga.  Ég vona að forsetinn neiti að skrifa undir þann samning líka og leggi hann í dóm þjóðarinnar, ef stjórnin dirfist að koma heim með annann IceSlave samning.

Svo legg ég það til að stjórnin banni kennitöluflakk, og setji lög á fjármögnunarleigur, þ.e.a.s banni þær.   

 

 


mbl.is Önnur áætlun AGS komi í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló yndisleg. Rétt að kanna eitt........... þekkir þú einhvern sem á rokk (ekki íslenskan þar sem hann er of takmarkaður) og langar að selja hann? Lærði að spinna í gær og það var sko bara gaman.

Christine Einarsson (IP-tala skráð) 26.3.2010 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband