15.5.2010 | 00:15
Magnað myndband
Það var áhrifamikið að horfa á þetta mynband sem fylgir fréttinni, ég var fyrir austan fjall um síðustu helgi og sá ég þá gosmökkinn í fyrsta skipti.
Mér fannst það undarlegast við gosmökkinn hversu oft mátti sjá allskonar andlit í mekkinum. Ég tók nokkrar myndir af gosmekkinum en myndavélin mín er ekki nógu góð til þess að taka góðar myndir úr mikilli fjarlægð, ég var stödd í Grímsnesinu...
Jökullinn í öllu sínu veldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég næ ekki myndbandinu,reyndi,hjá ,,hver grefillinn,, en það var allt slitrótt.
Helga Kristjánsdóttir, 15.5.2010 kl. 00:35
Ég var að kíkja á gosið í beinni, þar virðist allt vera að gerast. Það eru miklar eldingar í gosmekkinum og mikill gosmökkur sem virðist liggja í suður.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.5.2010 kl. 02:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.