Sjaldgæf sjón hérna á Nesinu

Ég var á leiðinni í verslun seinni partinn þegar ég sá mannfjölda hérna á Nesinu, nánar tiltekið við smábátahöfnina í Bakkavör. 

 Ég keyri þessa leið á hverjum degi, aldrei áður hef ég séð svona margt fólk samankomið þarna.  Fólkið var flest með veiðistangir, ég vona bara að jafn vel hafi veiðst hérna og í Ólafsvík. 

Ef ég hefði átt veiðistöng hefði ég fundið hana til og haldið til veiða sjálf, en ég skildi veiðistangirnar mínar tvær og veiðikassann eftir í sveitinni minni fyrir yfir 20 árum síðan. 


mbl.is Þorskur mokveiddur við bryggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Þráinn Jökull Elísson, 15.7.2010 kl. 04:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband