Engar fréttir af Gunnari Nelson á mbl.is

Hann var að berjast í Kickboxi í kvöld, ég var í vinnunni og vildu viðskiptavinir horfa á bardagann.  Þátturinn var skemmtilegur og margir bardagar háðir. 

Ég horfði á þetta með öðru auganu, nema síðasta bardaga kvöldsins.  Gunnar Nelson rúllaði þessu upp, hann vann miklu stærri mann á met tíma.  Í fyrstu lotu hann vann bardagann glæsilega, allir viðskiptavinirnir á barnum skemmtu sér vel. 

Og voru stoltir af þessum unga íþróttamanni, sem keppir fyrir Íslands hönd.  Hann er bara 22 ára gamall og var hann hógvær eftir bardagann. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Frábært hjá Gunnari, hann er kannski að verða næsta vonarstjarna Íslands ??

Guðmundur Júlíusson, 5.9.2010 kl. 01:05

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég heyrði því fleygt að Gunnar væri besti íþróttamaður Íslands í dag.  Frammistaða hans í kvöld var skemmtileg og afgerandi...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.9.2010 kl. 01:39

3 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ég get vel tekið undir með það, hann er frábærlega vel á sig komin sem íþróttamaður og er ekki nema 22 ára, og hver segir að íþróttamaður ársins þurfi alltaf að vera úr fótbolta eða handbolta, ekke er Eiður að gera neitt af viti í dag.

Guðmundur Júlíusson, 5.9.2010 kl. 01:44

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Bardagi Gunnars og Bretans kláraðist í 1. lotu flestir hinir bardagarnir voru miklu lengri, og leiðinlegri.  Strákurinn er ótrúlega efnilegur.  Hann er snöggur og ótrúlega sterkur.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.9.2010 kl. 01:49

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hann mun örugglega koma til greina næst þegar íþróttamaður ársins verður kjörinn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.9.2010 kl. 01:50

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ekki furða að ekki væri stafkrókur um þennan bardaga í gær, bardaginn var endursýndur. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.9.2010 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband