24.3.2011 | 00:49
Löngu tímabært
Mér finnst að íslensk stjórnvöld hefðu átt að finna uppá þessu sjálf, en ekki þurfa að svara Eftirlitsstofnun EFTA vegna fyrirkomulags útvarpsþjónustu í almannaþágu í samkeppni við frjálsa fjölmiðla.
Það hlaut alltaf að vera ólöglegt að setja nefskatt á fjölmiðil, sem er á fullu í samkeppni við aðra fjölmiðla.
Ég skil ekki ennþá hvers vegna þessi nefskattur var lagður á, svo er RÚV á fullu að undirbjóða auglýsingar og gerir allskonar samninga sem frjálsu fjölmiðlarnir geta ekki gert....
Vilja lengri frest vegna RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki bara það heldur máttu ekki eiga sjónvarpstæki ef þú villt ekki borga RÚV skattinn. Ef það er ekki skerðing á persónufrelsi þá veit ég ekki hvað. En það var Þorgerður Katrín sem við getum þakkað nefskattinn. Það var auðvitað meðan Rúv var í þjónsustu fyrir Sjálfstæðisflokkinn, nú er ruv í þjónustu þessarar ríkisstjórnar, svoleiðis er það bara, taka við skipunum frá ráðandi öflum og keyra á áróðurinn eins og þeim sé borgar fyrir........ hvernig læt ég auðvitað er þeim borgað fyrir, með nefskatti til dæmis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2011 kl. 10:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.