14.3.2008 | 02:14
18 ára í dag!!! Hún á afmæli í dag!!!
Til hamingju með afmælið Aðalheiður Björk, þriðja yngsta barnið mitt er 18 ára í dag. Núna á ég bara tvö börn undir 18 ára, sem ég fæ greitt meðlag með. Aðalheiður er dugleg stelpa, hún er búin að vera í vinnu á Grund í tvö ár. Fyrst í býtibúri í eitt ár svo í umönnun í eitt ár. Hún er búin að fara á nokkur námskeið sem kenna betri umönnun og ýmislegt annað nytsamlegt.
Heiða er hún kölluð, ég kallaði hana þegar hún var lítil Allabúggalú. Ég hef kallað öll börnin mín svona skrýtnum gælunöfnum. Hún er á leiðinni til Tælands í sumar með elstu systur sinni, og þremur öðrum konum sem vinna með þeim á Grund. Ein af þeim er tælensk og ætlar hún að vera þeim innan handar í Tælandi. Ég ætla að færa Heiðu súkkulaði köku í vinnuna á morgun, og rjóma líka. Það er siður á Grund að starfsfólk sem á afmæli, komi með köku í vinnuna.

Athugasemdir
Tiger, 14.3.2008 kl. 04:56
Til hamingju með dótturina
Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/Labrador, 14.3.2008 kl. 07:12
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.3.2008 kl. 08:58
Til lukku
Hólmdís Hjartardóttir, 14.3.2008 kl. 09:16
Til hamingju með daginn
Guðjón H Finnbogason, 14.3.2008 kl. 14:06
Til hamingju með Dóttir þína hafðu góða helgi mín kæra
Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 02:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.