Missä miehet ratsasta!!

Mér finnst nú finnska lagið frekar flott, ég er búin að hlusta á það nokkrum sinnum á youtube.  Ég er meira fyrir rokk, mér finnst þessi venjulegu öll eins Eurovision lög einstaklega leiðinleg.  Ég hafði ekki hugmynd um það að forkeppni Eurovision söngvakeppninar væri í kvöld, en einn viðskiptavinur vildi endilega að ég skipti um stöð á sjónvarpinu svo hann gæti hlustað á þetta væmna gaul.  Það var sem betur fer búið að spila 8 lög þegar hann bað mig um að fá að hlusta á þetta.  Eina lagið sem mér fannst skemmtilegt var þetta hressa finnska lag.  Þar sem ég skil finnsku, fannst mér það ennþá betra fyrir vikið.  Ein ,sem þykir vænt um Finnland


mbl.is Noregur og Finnland áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Missä miehet ratsasta, þýðir hvar ríða mennirnir út.  Gæti samt verið tvírætt held ég og þýðir þá hvar ríða mennirnir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.5.2008 kl. 01:35

2 Smámynd: halkatla

það var rosalega mikill kynþokkabragur á þessum finnum

halkatla, 21.5.2008 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband