22.5.2008 | 02:13
bíb bíb bíb
Bíb bíb bíb, svona hljóð er búið að vera að angra mig síðan ég kom heim úr vinnunni fyrir klukkutíma síðan, ég er búin að hlusta á öll rafmagnstæki, síma og allt sem mér datt í hug að gæti verið að bípa hjá mér.
Svo fór ég út með hundinn, þá var þetta bíb bíb bíb miklu háværara, og virðist mér hljóðið koma úr húsinu fyrir neðan mitt. Ég lokaði stofuglugganum þegar ég kom inn og er þetta óþolandi hljóð núna miklu lægra. Það er alveg ótrúlegt hvað svona hljóð getur farið í taugarnar á mér, ég er á nippinu Ég vona að nágranni minn sem á upptökin af þessu hljóði heyri það og lagi það sem er bilað Ein pirruð
Athugasemdir
heldurðu okkuð að þetta sé reykskynjari????
Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:40
..nokkuð
Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:41
Nei það er hætt núna og ég sá engan reyk, þegar ég fór út með hundinn minn
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.5.2008 kl. 02:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.