bíb bíb bíb

Bíb bíb bíb, svona hljóð er búið að vera að angra mig síðan ég kom heim úr vinnunni fyrir klukkutíma síðan, ég er búin að hlusta á öll rafmagnstæki, síma og allt sem mér datt í hug að gæti verið að bípa hjá mér.  

Svo fór ég út með hundinn, þá var þetta bíb bíb bíb miklu háværara, og virðist mér hljóðið koma úr húsinu fyrir neðan mitt.  Ég lokaði stofuglugganum þegar ég kom inn og er þetta óþolandi hljóð núna miklu lægra.  Það er alveg ótrúlegt hvað svona hljóð getur farið í taugarnar á mér, ég er á nippinu Shocking  Ég vona að nágranni minn sem á upptökin af þessu hljóði heyri það og lagi það sem er bilað Police  Ein pirruð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heldurðu okkuð að þetta sé reykskynjari????

Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:40

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

..nokkuð

Hólmdís Hjartardóttir, 22.5.2008 kl. 02:41

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nei það er hætt núna og ég sá engan reyk, þegar ég fór út með hundinn minn

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.5.2008 kl. 02:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband