26.5.2008 | 02:14
Ég man ennþá þegar ég fór á Hellu til að sjá torfæruna
Þá var frekar bjartur dagur og þurr. Og mikill vindur, ég var ekki búin að vera þar lengi þegar eyrun og augun á mér voru full af sandi. Ég hef aldrei hvorki fyrr né seinna lent í sandstormi, eins og var þennan dag fyrir nokkuð mörgum árum. þá var Árni Kópsson upp á sitt besta. Ég kannast mjög vel við hann Gísla Gunnar Jónsson, ég hjálpaði til við að halda fermingarveisluna hans, og frænku hans líka. Veislan þeirra var haldin í sveitinni minni fyrir 24 árum u.þ.b
Gísli sigraði í heimsbikarmótinu á Hellu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég man hér um árið þegar ég var að vinna á hestamannamótinu á Hellu - var þar í tjaldi í tíu daga - og það var rigning nánast alla dagana. Ömurlegt sko ... En ég hef aldrei farið á torfærutrall. Knús á þig skottið mitt...
Tiger, 26.5.2008 kl. 03:19
Innlitskvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.5.2008 kl. 11:52
Ég veit það er ótrúlegt en ég hef aldrei komið á torfærukeppni, spáðu í það, ég er frá Hellu,gamann að sjá svona tengingu Knús
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 26.5.2008 kl. 20:02
.....Og ég bý á Hellu....
Agnes Ólöf Thorarensen, 27.5.2008 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.