Hvað telst eðlileg skjálftavirkni?

Síðast í gær var sagt af jarðfræðingum að skjálftavirkni væri í rénum, núna virðist allt vera komið á fulla ferð aftur, það er búin að vera mikil skjálftavirkni við Skálafell.  Þar hafa nýlega komið nokkrir jarðskjálftar sem eru tæpir 3 á richter, ég er alveg hissa hvað jarðfræðingarnir eru snöggir að segja að öllu sé óhætt, allt er í rénum o.s.v.f það hefur ekki verið mikið að marka þá undanfarna daga.
mbl.is Eðlileg skjálftavirkni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta var undarleg fyrirsögn   en skjálftar eru eðlilegir á Íslandi ekki satt?? Þetta ER EKKI BÚIÐ

Hólmdís Hjartardóttir, 3.6.2008 kl. 02:03

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jú eðlilegir innan vissra marka   Við búum nú á flekamótum   Ég veit að ekki er allt búið ennþá

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.6.2008 kl. 02:05

3 Smámynd: Tína

Nei tilfinningin segir mér líka að þetta sé sko EKKI búið. But who am I to say?  En ég tek í það minnsta meira mark á ykkur Hólmdísi en þessum spekúlöntum í fjölmiðlunum. 

Hafið það annars gott elskurnar og vonandi skín sólin á ykkur í dag eins og hún gerir hjá mér

Tína, 3.6.2008 kl. 05:43

4 Smámynd: Linda litla

Þeir geta ekkert sagt að öllu sé óhætt. Þeir hafa eki hugmynd um það, ef að svo væri þá hefðu þeir örugglega geta varað fólk við jarðskjálftanum upphaflega. Ekki tek ég mark á þeim.

Linda litla, 3.6.2008 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband