Góð kaup

Ég skrapp í nýjustu verslun Elko á laugardaginn með son minn.  Tilgangurinn var að gá hvort Toshiba fartölvan sem auglýst var í opnunartilboði væri til.  Sonurinn var með tilbúna peninga ef þessi tölva væri til, og viti menn þegar ég kem akandi að þessari nýju verslunarmiðstöð, í öllu umferðaröngþveitinu sem fylgdi hinum ýmsu opnunartilboðum.  Fékk ég bílastæði beint fyrir framan innganginn að Elko.   Tölvan var til og keypti sonurinn þessa nýju fullkomnu fartölvu á aðeins 59.900 ég keypti mér tvo usb minnislykla 2mb á aðeins 995 kr. stykkið sem telst frekar ódýrt í dag.  Núna þarf ég bara að læra smá hvernig á að nota Windows Vista stýrikerfið, þá get ég stolist í tölvuna hjá syninum þegar hann er fjarrverandi.  Woundering   Ein tæknivædd

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband