8.6.2008 | 02:01
Mér virðist vera meiri aukning á skjálftum núna í kvöld og nótt
Ég var að skoða síðuna www.hraun.vedur.is og finnst mér vera aukning á skjálftum í kvöld, dagurinn var frekar rólegur. Það mælast miklu fleiri skjálftar á hverri klukkustund núna. Ég bíð bara eftir að þessi skjálftahrina endi með tveimur stærri skjálftum, og svo fari allt að róast. þar á meðal ég.
Skjálftavirni að aukast á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skil vel að ykkur, sem eruð svona nálægt "uppsprettunni", verði ekki svefnsamt meðan á þessu stendur. Held líka að við, sem erum fjær, gerum okkur ekki fulla grein fyrir því hvað þið eruð að upplifa. Hugsum samt austur.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 02:58
Góðan daginn krútta. Vona að þú skemmtir þér nú vel í veislunni í dag. En svo gleymi ég alltaf að óska þér innilega til hamingju með barnabarnið . Stundum er maður bara gjörsamlega úti á túni sko.
Ert þú annars búsett nálægt skjálftasvæðinu Jóna mín? Það var einmitt einn skjálftinn í morgun sem rak mig á fætur. Enda kl orðin 5 og löööngu kominn fótaferðatími! Annars finnst mér þessir skjáltar sem eru í kringum 3 orðið ekki neitt neitt. Ótrúlegt hvað maður verður e-ð samdauna (er hægt að nota þetta orð hér?) þessum skjálftum öllum.
Kram og stuðkveðjur til þín
Tína, 8.6.2008 kl. 06:28
Ég verð nú að leiðrétta smá misskilning, ég er ekki fyrir austan. Ég er á Seltjarnarnesi, og er haldin jarðskjálftafóbíu á háu stigi. Eftir slæma reynslu þegar ég var barn
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.6.2008 kl. 12:04
Hólmdís Hjartardóttir, 8.6.2008 kl. 12:49
´Vona að þetta sé að verða búið hjá ykkur knús að norðan
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 8.6.2008 kl. 14:14
Ég væri eiginlega alveg til í að láta einvhern hrista mig í svefn núna.
Farðu vel með þig Jóna
Linda litla, 8.6.2008 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.