Ámátlegt væl.

Ég heyrði kunnuglegt ámátlegt væl, hérna rétt áðan.  Dóttir mín sem er í heimsókn hérna hjá mér hélt að barnið sitt væri að gráta.  Ég sagði við hana ekki hafa áhyggjur, þetta er bara Rúsína mín að færa mér gjöf.  Dótti mín kom með mér til dyra til þess að sannreyna að ég segði satt. Heart   Alltaf þegar hún kemur með gjöf handa mér, heyri ég hljóð sem líkist barnsgráti og hleyp til dyra.  Í kvöld fékk ég svartann sokk, svona sportsokk sem nær upp  að hnjám.  W00t   Ég tók vel á móti henni og gaf henni gott að borða, sem þakklætisvott fyrir þessa frábæru gjöf.  Ein kisukona

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

rúsína dregur björg í bú

Hólmdís Hjartardóttir, 12.6.2008 kl. 01:54

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég vona að ég fái hinn sokkinn á morgun!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.6.2008 kl. 01:56

3 Smámynd: Tiger

 Jóna þó - ég myndi láta kisu þefa af peningaseðli á hverjum degi - þannig myndi hún þekkja peningalyktina og svo myndi hún kannski bara fara að koma með seðla heim til að gefa þér! Um að gera að prufa - þá gætir þú orðið "áskrifandi" að peningaseðlum svo lengi sem kisa nennir að bera þá heim ... hahaha.

Æði þessar elsku kisur sko. Þær eru að sýna ást sína með því að færa manni svona gjafir. Vonandi fer hún ekki að bera heim mýs og svoleiðis dóterí ... knús á þig Jóna mín.

Tiger, 12.6.2008 kl. 03:22

4 Smámynd: Tína

Það vona ég líka að þú fáir hinn sokkinn. Spurning annars að setja mynd af þessum í blaðinu og óska eftir því að fá hinn.

Takk fyrir kvittið hjá mér dúllan mín og knús í daginn. 

Tína, 12.6.2008 kl. 07:48

5 Smámynd: Linda litla

Kisur eru yndislegar... Tumi minn kom einu sinni með grillsneið inn um gluggan hjá dóttur minni þegar hún var að passa hann fyrir mig í fyrra sumar og ekki nóg með , heldur var sneiðin heit

Linda litla, 12.6.2008 kl. 14:14

6 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Ég á nú bara venjulegann  kött

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 12.6.2008 kl. 15:34

7 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Sæl Jóna mín. Þar sem þú ert mikil kisukona þá langaði mig að gefa þér slóð á skemmtilega síðu um hvað hreyfingar skottsins á köttunum táknar. Enginn vírus í henni sonur minn fann þetta fyrir mig. Ég á kisu og fór að fylgjast með skottinu hans með síðuna í huga og hugsaðu þér, það var virkilega hægt að lesa úr hreyfingum þess  En hér er slóðin.  

http://www.xmission.com/~emailbox/tailtalk.htm

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 12.6.2008 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband