20.7.2008 | 03:04
Ísbirnir eða hvað?
Kannski er þetta bara hrútur í tveimur reifum, eða grár hestur. Júlíus Valsson var með frábæra mynd af svona fyrirbæri á sínu bloggi. En ég vona að þetta séu ekki ísbirnir, þá byrjar þessi fjölmiðlasirkus aftur, á að drepa þá? Á að leggja í rándýrar björgunaraðgerðir? Allavega eigum við núna ísbjarnarbúr og kannski deyfilyf sem hægt er að skjóta í ísbirnina, ef þeir reynast ekki vera kindur eða hestar.
Ísbirnir á Hornströndum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Akkúrat, nú er allt til reiðu, nema danski gaurinn er farinn aftur. - En það hlýtur að "reddast". -
En í alvöru þá finnst mér þetta óhugnanlegt, - afþví þetta getur því miður reynst rétt.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.7.2008 kl. 03:11
Sæl jóna mín.
Við skulum vona að menn séu ekki að leika Úlfur,Úlfur. Til þess er málið of alvarlegt og ef að menn eða konur eru að gera slíkt á að taka stngt á því. Mannslíf eru dýrmæt.
Takk fyrir.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 04:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.