Skotar hér, skotar þar, skotar eru allstaðar.

Það var gaman að vera í vinnunni minni í kvöld, 90% af viðskiptavinum kvöldsins voru Skotar og flestir þeirra voru í skotapilsum.  Ég verð nú að segja það að mér finnast menn í pilsum kynþokkafullir.  W00t  Svo voru náttúrulega skoskar konur með í för og voru þær ekki í pilsum.  Meirihluti skotanna er í pilsum,  allavega þeir sem voru á gangi á Laugaveginum í kvöld.  Margir skotanna sögðu við mig sjáumst á morgun, og einn pantaði hjá mér 12 flöskur af ákveðnu hvítvíni sem við seljum ekki á barnum okkar.  Þannig að ég þarf að fara í ríkið í fyrramálið og kaupa þessar flöskur.  Við áttum ekkert nógu þurrt hvítvín, svo maður verður að standa sig í þjónustunni við viðskiptavinina og fara í verslunarleiðangur á morgun.  Þeir ætla að hittast á barnum klukkan 13.00 og þá að vera til þetta ákveðna hvítvín kælt og tilbúið til neyslu.  Þessir skotar eru fastakúnnar, þeir héldu til á barnum okkar fyrir 6 árum þegar Ísland og Skotland kepptu síðast í fótbolta hérna á Íslandi.  Smile   Ein þreytt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nú kíki ég eftir vinnu á morgun............ef ekki hefur orðið heimsendir.  Gaman að skotapilsunum úti um allt

Hólmdís Hjartardóttir, 10.9.2008 kl. 02:17

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hafðu tilbúið eitt skot

Hólmdís Hjartardóttir, 10.9.2008 kl. 02:18

3 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Jebb skotapilsin eru flott

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 10.9.2008 kl. 08:00

4 Smámynd: Ragnheiður

Þeir eru fínir og það er ekkert vesen á þeim eða neitt.

tveir fengu hláturskast hjá mér í gær, var að spjalla við þá í miðbænum og þeir vildu komast á bar þar sem ekki væru Skotar. Ég benti þeim á að það gengi ekki upp, það VÆRU Skotar á öllum börum bæjarins!

Ragnheiður , 10.9.2008 kl. 08:20

5 Smámynd: Tína

Ég gat allavega ekki betur séð í seinni fréttatímanum en að það væri sko rokna stuð á skotunum.

Have funþ

Tína, 10.9.2008 kl. 09:34

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hvað er þetta með ykkur kynsystur mínar og þessa karla í skotapilsum???

Mér finnst þeir ekki vitund sexý en ég er greinilega ein af fáum um þá skoðun..... kannski bara eitthvað að mér.....

Lilja G. Bolladóttir, 10.9.2008 kl. 12:39

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.9.2008 kl. 19:24

8 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Kannski maður fari að máta pils ha???

Einar Örn Einarsson, 10.9.2008 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband