17.9.2008 | 01:20
Skaplegt veður hérna á Nesinu
Hérna á Seltjarnarnesinu er skaplegt veður. Þegar ég var að keyra heim úr vinnunni fyrir rúmri klukkustund síðan, voru nokkrir stórir pollar sem ég þurfti að keyra yfir, og ég lenti í einni vænni vindhviðu við Eiðistorgið. Hérna heima hjá mér finn ég varla fyrir þessu veðri. Ég var að koma inn, ég skrapp aðeins út til þess að reykja og heyrist mikið í vindi og trén svigna. En það er skjól á tröppunum mínum, enda snúa þær í norður.
Ein afslöppuð
Mörg útköll vegna óveðursins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hahaha vonda veðrið er á leiðinni
Hólmdís Hjartardóttir, 17.9.2008 kl. 01:24
Er ekki sofnuð ennþá hér á skaganum er kolvitlaust veður hafðu góða nótt Elskuleg
Brynja skordal, 17.9.2008 kl. 01:56
Oj, veðirð var bara ógeðslegt. Ég hélt að ég og sonur minn myndum fjúka á leiðinni heim um kvöldmat.
Linda litla, 17.9.2008 kl. 09:39
Hér var veðrið ógeðslegt
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 17.9.2008 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.