5.10.2008 | 02:28
Kapp er best með forsjá
Þannig hafa Íslenskir bankar og Íslenskir fjárfestar ekki hagað sér undanfarin ár, mér hefur fundist það skrítið að vera að fjárfesta í útlöndum og innanlands með bréfum í hinum og þessum fyrirtækjum. Hvaða bréfum, jú hlutabréfum og er þetta svo flókið ferli að það er ekki fyrir venjulegt fólk að skilja þetta. Voru ekki notaðir peningar? Bara hlutabréf, sem gengu milli manna og fyrirtækja? Ég hef oft furðað mig á þessu en skil þetta alls ekki. Í sjónvarpinu sá ég fréttaskýringu á þessu ári hvernig köngulóarvefur var myndaður með ýmisskonar kaupum og sölum á hlutabréfum í fyrirtækjum. Ein skilningslaus
Ísland flautað úr leik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert ekki ein á báti - ég skil ekki heldur.
Sigrún Óskars, 5.10.2008 kl. 10:05
það voru aldrei peningar.....hvaðan áttu þeir að koma? Allt pappírsviðskipti
Hólmdís Hjartardóttir, 5.10.2008 kl. 15:24
Innlitskvitt og yndislegar kveðjur inn í nýja viku
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.10.2008 kl. 17:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.