6.10.2008 | 00:59
Er maðurinn að tala í alvöru?
Er allt orðið gott eftir fundarhöld helgarinnar? Eru peningarnir fundnir, þetta lausafé? Hættir krónan að falla eftir helgina? Er lánsfjárkreppan læknuð? Dugar það að frysta kjarasamningana og allt er orðið gott? Halda þeir að fólk sé fífl? Ég spyr eins og fávís kona.
Ekki þörf á aðgerðapakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Jóna.
Ég hjó líka eftir þessu. Málinu reddað. Hvað er í gangi.Sjáðu nú til það kemur einhver ekki vel-lyktandi aðgerð eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Annars er ég að jafna mig á öllum þeim upplýsingum sem Jónína Ben, kom með í silfri Egils í dag . Það er rosalegt þó ekki væri nema 1/4 satt.
Heyrumst.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 01:09
Ég horfði líka á Silfur Egils í gær, hagfræðingurinn kom með marga góða punkta, og Jónína Ben líka. Ég er sammála Jónínu með það að frysta eigur milljarðamæringanna og gera allt sýnilegt og segja sannleikann. Ekkert baktjaldamakk og feluleiki.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.10.2008 kl. 01:18
það verður fróðlegt að fylgjast með á morgun
Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2008 kl. 02:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.