12.10.2008 | 01:00
Afhverju?
Afhverju eigum við að sækja um stuðning alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Eru engin önnur úrræði? Á að fela þessum sjóði allar auðlindir Íslands í ótalmörg ár, þessar upphæðir eru eiginlega of stórar fyrir mig að skilja. Eins og 4 milljarðar evra? Hvað er það í íslenskum krónum? Eigum við, börnin okkar og barnabörn eftir að vera í skuldafeni um ókomin ár? Eigum við sem lifum í dag eftir að sjá jafnvægi í fjármálum þessa lands? Mér finnst að þeir sem stofnuðu til þessara risavöxnu skulda erlendis eigi að sjá um afborganirnar af þeim, ekki ég og mínir afkomendur. En þeir "bankarnir og stjórnendur þeirra" virðast vera lausir allra mála. Ekki finnst mér þetta góð pólitík.
Ísland á að sækja um stuðning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Best ef við gætum fengið aðstoðia frá norðurlöndunum
Hólmdís Hjartardóttir, 12.10.2008 kl. 01:10
http://inhauth.blog.is/blog/inhauth/entry/670021/ Fróðleg lesning.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.10.2008 kl. 01:49
Jóna, mér finnst þetta stórgóð grein eftir Indriða. Nú ætla ég að vera leiðinlegur: Fólk vill fá einfaldar lausnir, helst töfralasnir. Boðberar illra tíðinda og jafnvel þeir sem segja hlutina eins og þeir eru eiga ekki upp á pallborðið. Davíð hefur aldrei verið heilög kýr í mínum huga og hann ásamt Halldóri ber mikla ábyrgð á hvernig komið er. Hann er þó mun betri en sumir sem nú sjá sér leik á borði að gera hann að blóraböggli. Ég get vel skilið að Samfylkingin vilji þvo hendur sínar en hún gerir það þá úr menguðu vatni.
Sigurður Þórðarson, 12.10.2008 kl. 08:10
Ég spyr líka hversvegna...var ekki alltaf sagt að bankarnir stæðu vel og ættu nægt eigið fé og væru bara í lausafjárkrísu?...nú ef svo er þá hljóta eignir að standa undir skuldum ekki satt...er þá eitthvað vandamál...Ég er reyndar ekki hagfræðingur eða með viðskiptavit en ég skil ekki allar þessar lántökur ef eiginfjárstaðan var svona sterk..
ÖSSI, 12.10.2008 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.