14.10.2008 | 00:35
Hrægammarnir slást um hræið
Er þetta ekki móðgun við Baug og Íslendinga að bjóða í hræið með 95% afslætti? Ég á varla aukatekið orð. Ég vona að þessi stóri bandaríski fjárfestingasjóður sé ekki alveg svona slæmur og Philip "Greedy" Green. Kann fólk ekki að skammast sín?
Vill kaupa skuldir Baugs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er frjálshyggjan
Hólmdís Hjartardóttir, 14.10.2008 kl. 01:50
Það er nú mál margra að Green sé nú að koma fram sem "leppur" fyrir Jón Ásgeir og famelíu. JÁJ hefur undanfarið sagt að fyrirtæki þeirra í Bretlandi standi vel og hafi ávallt staðið í skilum með öll lán og afborganir af þeim. Skyndilega, aðeins daginn eftir að hann lýsti þessu síðast yfir í Silfri Egils, þá kemur Green og býður að hann geti keypt skuldir Baugs á 5% af virði þeirra. Stærsta aflúsun Íslandssögunnar ef af yrði. Green fengi ríflega greitt fyrir greiðann af geislaBAUGSfeðgum að sjá um að snýta íslensku þjóðinni um 95% af 3-500.000.000.000 króna skuldum félagsins. Ef eitthvað er að marka Jón Ásgeir yfirleitt þá standa þessi fyrirtæki við skuldbindingar sínar og afborganir og eru í ágætum rekstri og þurfa ekkert á því að halda að íslendingar gefi þeim 3-500 þúsund milljónir.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.10.2008 kl. 07:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.