Hrægammarnir slást um hræið

Er þetta ekki móðgun við Baug og Íslendinga að bjóða í hræið með 95% afslætti?  Ég á varla aukatekið orð.  Ég vona að þessi stóri bandaríski fjárfestingasjóður sé ekki alveg svona slæmur og Philip "Greedy" Green.  Kann fólk ekki að skammast sín?   
mbl.is Vill kaupa skuldir Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er frjálshyggjan

Hólmdís Hjartardóttir, 14.10.2008 kl. 01:50

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það er nú mál margra að Green sé nú að koma fram sem "leppur" fyrir Jón Ásgeir og famelíu. JÁJ hefur undanfarið sagt að fyrirtæki þeirra í Bretlandi standi vel og hafi ávallt staðið í skilum með öll lán og afborganir af þeim. Skyndilega, aðeins daginn eftir að hann lýsti þessu síðast yfir í Silfri Egils, þá kemur Green og býður að hann geti keypt skuldir Baugs á 5% af virði þeirra. Stærsta aflúsun Íslandssögunnar ef af yrði. Green fengi ríflega greitt fyrir greiðann af geislaBAUGSfeðgum að sjá um að snýta íslensku þjóðinni um 95% af 3-500.000.000.000 króna skuldum félagsins. Ef eitthvað er að marka Jón Ásgeir yfirleitt þá standa þessi fyrirtæki við skuldbindingar sínar og afborganir og eru í ágætum rekstri og þurfa ekkert á því að halda að íslendingar gefi þeim 3-500 þúsund milljónir.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.10.2008 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband