17.11.2008 | 01:46
Skrímslið lætur í sér heyra
Svo virðast allir stjórnmálamennirnir hvar í flokki sem þeir standa, reyna allt til þess að ganga í ESB. Allt í einu er kominn meirihluti fyrir könnunarviðræðum um inngöngu í ESB. Ég hef alltaf verið á móti því að Íslandi gangi í þennan kolkrabba Evrópu. Ég átti ágætis samræður við breta sem var á barnum hjá mér í kvöld, hann hafði áhyggjur af tapi sveitafélaga sem höfðu lagt mikla peninga inn á Icesave reikninga í Englandi. Svo spurði hann "how was this possible" ég svaraði náttúrulega eftir bestu getu vegna aðgerða og eftirlitsleysis Íslenskra stjórnvalda. Svo spurði hann mig "Where is all the money" Hverju átti ég að svara? There never was money? This was only paper, stock and no values. Ég og við íslendingar áttum alla samúð þessa breta, en hann var samt hissa á því hversu langt þetta svindl gekk og hversu auðtrúa við íslendingar erum
Skilaboðin voru skýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vil láta skoða aðild kosti þess og galla.
Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 02:11
Það var hellingur af peningum til, við erum bara búinn að eyða þeim öllum. Þarf eitthvað að minna fólk á að við Íslendingar keyptu lúxusjeppa eins og margra milljón manna markaður. Almenningssamgöngur er jaðarfyrirbæri á Íslandi, við vorum farinn að slaga upp í sama bílafjölda á fjölskyldu og Amerísk fjölskylda. Merkjavörur, LCD skjáir, fellihýsi, rándýrar eldhúsinnréttingar, glæsihýsi og allt þetta rugl. Allt tekið á láni. Ofneyslan skýrir það að við erum held ég orðin núna langfeitasta þjóð í Evrópu . Við vorum búnir að byggja efnahag okkar nákvæmlega eins og Bandaríkjamenn, byggðum hann upp af ofneyslu, neyslan tekin að láni erlendis frá, sköpuðum gríðarlegan viðskiptahalla við útlönd. Bandaríkin mun fara sömu leið áður en líður um langt og ég efast um að Obama muni geta komið í veg fyrir það hversu góð sem hans efnahagsstefna muni vera.
Auðvitað eigum við að ganga í ESB og taka upp evru, því fyrr því betra.
Jón Gunnar Bjarkan, 17.11.2008 kl. 03:24
Bara kvitt og knús
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 17.11.2008 kl. 07:53
Heldurðu að það sé auðvelt að ganga úr ESB aftur ef það hentar ekki ? Ég er hrædd um að landið festist þar og ég er ekki ESB sinnuð, ég var það en nú treysti ég þessu ekki lengur
Ragnheiður , 17.11.2008 kl. 08:06
kvitt,kvitt
Agnes Ólöf Thorarensen, 17.11.2008 kl. 10:18
Góðan daginn elsku vinkona og bestu ljúfar knúskveðjur:):)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.11.2008 kl. 10:22
Uss ... jamm það er stundum alveg kýrskýrt að það er hægt að leiða okkur í villunni eins og kýr - eða beljur bara...
Muuuuu í nýja viku Jóna mín ...
Tiger, 18.11.2008 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.