30.11.2008 | 02:20
Kaldur en góður fundur
Ég, frumburðurinn og örverpið fórum á þennan fund. Ræðumennirnir voru alveg ágætir, en mér fannst vanta smá neista í ræðurnar þeirra. Við mæðgur fórum kappklæddar á þennan mótmælafund, klæddar ullarnærklæðum innst og mjög góðum skjólflíkum utanyfir. Við vorum allar í góðum kuldaskóm og ullarsokkum, samt var mér kalt á tánum í lok fundarins. Við fórum í kaffi og vöfflur hjá vinstri grænum eftir fundinn til þess að hlýja okkur smá.
Allir að muna eftir að mæta þann 1. des kl. 15.00 á Arnarhól, þar verður þjóðfundur.
Segir góða stemningu á mótmælafundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hæhæ ég sá þig ekki inná msn, skoðaðu nýjustu færsluna mína sem ég setti inn á sama tíma og þú, hún er inní listanum yfir nýjustu bloggfærslurnar á blog.is
Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:22
Ok Kolla mín ég kíki
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:28
komdu aðeins inná msn ég þarf að senda þér link á frétt hjá vísi og held það megi ekki hér.
Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:48
Kolla mín ég er í tölvunni hans Jóa þar er ekkert msn. sendu linkinn bara hingað!!!
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:50
http://www.visir.is/article/20081129/VIDSKIPTI06/333296199/-1
Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:57
Ég var búin að lesa þetta fyrr í kvöld
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 02:59
Frekar skuggaleg og flókin frétt haha
Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, 30.11.2008 kl. 03:00
Hún er svo flókin að ég skildi hana ekki. Hrærigrautur af orðum. Og Glitnir sagt allt of oft, ég held að ég þurfi að fara að skipta um viðskiptabanka.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 03:02
Ég forðaði mér frá Glitni en það skrítna var að glitnir uppgötvaði það, ég er með eitt lítið skuldabréf í glitni og þau voru búin að setja það í ógreidda reikninga flokkinn í nýja bankanum mínum (spron útá nesi, frábær banki) áður en mánaðamótin skullu á. Hahaha
Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, 30.11.2008 kl. 03:08
Skuldarar sleppa aldrei frá banka, þeir elta þá uppi hvert sem þeir fara
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 03:10
Ég er farin að sofa, heyrumst seinna Kolla mín. Daníel sefur í rúminu mínu og ég þarf kannski að vakna snemma í fyrramálið. Góða nótt
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.11.2008 kl. 03:11
Fann þig ekki á Austrvelli...........ég held mig alltaf nálægt sviðinu
Hólmdís Hjartardóttir, 30.11.2008 kl. 14:36
Innlitskvitt og ljúfar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.11.2008 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.