Er verið að refsa RUV fyrir fréttaflutninginn?

Allavega virðist mér það, fréttastofan verður mest fyrir niðurskurðarhnífnum.  Ég var nú smá hneyksluð þegar frétt um lækkun launa Páls Magnússonar var aðeins u.þ.b ein verkamannalaun af þeim 12 verkamannalaunum sem hann þiggur um hver mánaðarmót.   Má ekki gera betur og skera laun æðstu stjórnenda um allavega helming?  Ekki finnst mér það ósanngjarnt.  Hagræðingar ríkisfyrirtækja virðast alltaf lenda á venjulega fólkinu, með venjulegu launin.  Þetta lýsir náttúrulega stjórnsýslu þessa lands í hnotskurn.   Shocking   Ein á verkamannalaunum
mbl.is Aðför að fréttastofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Ef eitthvað ætti að styrkja er það einmitt fréttastofan. Hún þarf líka að verða sjálfstæð og ekki undir hælnum á ríkisstjórninni.

Það er varla verið að refsa fréttastofunni fyrir fréttaflutninginn endilega, því hún hefur ekki flutt neikvæðar fréttir af ríkisstjórninni nema þegar hún hefur NEYÐST til.

Ég teysti ekki fréttastofustjóra né stjórninni þar frekar en öðrum sem brugðust upplýsingahlutverki sínu síðustu tvö ár, ef ég á að segja alveg eins og er. Það getur vel verið að það sé af ástæðulausu en ég vil að það verði farið almennilega yfir það. Sé ekki hvað er svona ótrúlega frábært við Pál Magnússon að hann þurfi að vera með milljónalaun.

Rúnar Þór Þórarinsson, 1.12.2008 kl. 01:38

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Svo erum við líka að borga af jeppanum hans

Sigrún Jónsdóttir, 1.12.2008 kl. 01:45

3 identicon

Sæl Jóna mín.

Og sárast af þessu öllu,

 er það, að svona yfirmenn eins og Páll Magnússon eru ósnertanlegir algjörlega ósnertanlegir nema ef væri að þeir fremdu mannsmorð þá yrði kannski gripið  inn í,... eða ?  Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 01:52

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Allur fréttaflutningur undanfarin ár hefur verið brenglaður að einhverju leiti.  Það er mitt mat svona eftirá.  Það virðast ekki vera alvöru rannsóknarfréttamenn hérna á landinu.  Kompás gengið hefur reynt að vera það en er samt ekki að virka. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.12.2008 kl. 01:53

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þótt laun PM hefðu verið skert um tvenn fréttamannalaun hefði hann samt verið á góðum launum..............hefði ekki veriðbetra að hafa tvo menn áfram í vinnu?

Hólmdís Hjartardóttir, 1.12.2008 kl. 03:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband