15.12.2008 | 02:08
Annasöm fríhelgi að baki.
Mikið er ég búin að afreka um þessa helgi. Á föstudagskvöldið var ég barnapía fyrir yngsta barnabarnið mitt. Mamma hans fór í afmæli hjá frænku sinni og kom ekki heim fyrr en í morgunsárið. Á laugardaginn kom litla mamman mín með börnin sín þrjú í heimsókn. Ég dreif þrjár dætur mínar með mér á þöglu mótmælin fyrir framan Alþingishúsið, eftir mótmælin fórum við og fengum okkur kaffi og vöfflur hjá Vinstri Grænum á Suðurgötunni. Eftir mótmælafundinn varð að finna eitthvað að borða fyrir allt fólkið. Minn fyrrverandi var líka í heimsókn, og keypti hann steiktan kjúkling í Nóatúni með frönskum og kóki. Ég átti Tortillur með öllu meðlæti og var það líka borðað. Það er ótrúlega mikið sem 12 manns geta borðað mikið. Svo í gær sunnudag, kom litla mamman mín með bara tvö barnanna sinna. Ég fór með mínum fyrrverandi í Hagkaup í Skeifunni til þess að hjálpa honum að kaupa jólagjafir fyrir barnabörnin okkar. Ég keypti eina jólagjöf í leiðinni.
Svo var farið heim og börnin og barnabörnin skreyttu piparkökur með túbulitum úr Hagkaupum en piparkökurnar voru keyptar í Bónus. Börnin skemmtu sér vel við skreytingarnar. Svo í kvöld var ég í vinnunni minni og þar var alveg brjálað að gera. Það er ekki mikil kreppa á barnum þar sem ég vinn 5 kvöld vikunnar. Ein sem er þreyttari eftir helgarfríið, en eftir síðustu vinnuvikuna.
Athugasemdir
Knús knús í hús og ljúfar yndislegar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.12.2008 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.