Erfitt kvöld að baki

Í vinnunni minni í kvöld voru allskonar vandræði, fíkniefnaneysla, slagsmál og leiðindi.  Ætli það sé fullt tungl á morgun?  Jú það er víst.  Það er sjaldgæft að sjá fólk sjúga eitthvert hvítt duft af borðunum með röri upp í nefið, allavega á barnum þar sem ég vinn.  Ég veitti fólkinu tiltal og sagði ef ég sé þetta aftur hringi ég á lögregluna og rak svo fólkið út.  En ein kona úr hópnum varð eftir þegar hinir fóru, hún fékk heimsókn á barinn.  Sá sem heimsótti hana sagði að hún hefði stolið símanum hans, í fyrrinótt.  Hún þrætti fyrir það, og endaði rifrildið með slagsmálum.  Á morgun á fullu tungli mun ég hafa dyrnar á barnum læstar, og ég mun aðeins hleypa fastakúnnum inn.  Engum óróaseggjum, eða fíkniefnaneytendum.  Ég þakka fyrir það að borð og stólar voru ekki brotin á barnum í kvöld, og ég slapp ómeidd frá látunum.  Shocking   Ein þreytt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Þá er bara að reyna að hvíla sig vel í nótt og ná góðum svefni. Svo er að vona að fulla tunglið leggist ekki jafn illa í liðið á morgun og vaxandi gerði í kvöld.

Kristín Dýrfjörð, 9.2.2009 kl. 02:35

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Já þetta er staðreynd með fulla tunglið.

Ekki hefði ég úthald í að vinna á bar. Dáist að ykkur sem geta það

Einar Örn Einarsson, 9.2.2009 kl. 05:08

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt,Knús og kossar:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.2.2009 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband