9.2.2009 | 16:25
Er ekki betra að taka það út?
Heldur en að láta lífeyrissjóðina nota peningana í áhættufjárfestingar? Hversu miklum fjármunum töpuðu lífeyrissjóðirnir á bankahruninu? Voru þeir ekki komnir út fyrir valdsvið sitt, að nota fjármuni fólksins til áhættufjárfestinga? Mér þykir illa hafa farið með peningana okkar. Ég verð nú að viðurkenna að ég á ekki sama rétt og aðrir. Ég hef bara borgað í lífeyrissjóð í kannski 10 ár, ég er ein af þessum réttlausu, ég var húsmóðir og uppalandi 6 barna í 23 ár. Þannig að ég á minni rétt en aðrir á mínum aldri. Ég verð líklega fátækt gamalmenni, ef ég verð það gömul að þurfa að sækja greiðslur úr lífeyrissjóði.
Vara við útgreiðslu viðbótarsparnaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Auðvitað eru margir í þeim sporum núna að þurfa á einhverri hjálp að halda - og ef þeir eiga rétt á góðum lífeyri - þá finnst mér það í sannleika sagt fullkomlega eðlilegt að þeir fái að taka hann út núna.
Spurning um hvor maður verður nokkuð gamall uppúr þessu - ætli það deyji ekki margir af vosbúð vegna kreppunnar .. ussuss! Knús í þitt hús Jóna mín!
Tiger, 9.2.2009 kl. 16:35
Endilega lestu bloggin hans Ragnars Jóna mín.
http://ragnar73.blog.is/blog/ragnar73/
Helvítis vibbinn er um allt og spillingin er langt frá því að vera bundin við einn mann eða einn stjórnmálaflokk.
ASÍ , líferyissjóðirnir og stór hluti verkalýðshreyfingarinnar eru á kafi í þessum dammi.
Einar Örn Einarsson, 9.2.2009 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.