14.2.2009 | 01:20
Minna á milli handanna hjá fólki
Það er ekkert skrítið að fólk eyði meira og versli minna. Miðað við hækkanir á nauðsynjavöru og þjónustu undanfarna mánuði. Mitt heimilisbókhald er núna á mörkunum að komast í mínus. Samt hef ég ákveðið að kaupa ekkert á þessu ári, sem ekki er nauðsyn. Ég er í verslunarbanni að eigin ósk. Ég hef bara fallið einu sinni, þá keypti ég buxur á örverpið á útsölu fyrir 2000 krónur. Ég hef ekki lengur efni á því að fara til tannlæknis. Svo verð ég að neita börnunum mínum um næstum allt, nema mat. Á næstunni verður að skera niður í matarkaupunum líka.
Fólk kaupir minna en eyðir meira | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.