3.3.2009 | 02:15
Blessuð börnin
Þau eru svo yndisleg, ég hef alið upp 6 börn og borða 5 þeirra grænmeti með bestu lyst. Ekki þurfti ég að nefna grænmetið Ofursjónar-gulrætur eða neitt slíkt. Börnin borða grænmetið ef það er á borðum dags daglega. Það er gott mál að bjóða alltaf uppá grænmeti með matnum, setja smá á diskinn hjá barninu og láta það smakka. Það endar með því að flest börn læra að borða grænmeti frá unga aldri, og verður aldrei vandamál.
Ofurbaunir og risaeðlubrokkolí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þetta er að hafast
Hólmdís Hjartardóttir, 3.3.2009 kl. 02:29
Tek undir með Hólmdísi...þetta er að hafast. Alla vega eru barnabörnin mín duglegri við grænmetið en börnin mín voru....hvað þá ég og mín kynslóð.
Sigrún Jónsdóttir, 3.3.2009 kl. 10:56
Þetta er mjög sniðugt svona fyrir þau börn sem e-a hluta vegna eru ekki sólgin í grænmeti. Sonur minn borðar og hefur alltaf borðað grænmeti með bestu list, en eins og hjá þér þá er grænmeti alltaf með öllum mat hjá mér. Einnig veltir maður því fyrir sér hvort það hafi e-r áhrif að á meðgöngunni borðaði ég grænmeti hreinilega eins og það væri að fara úr tísku - kannski lærði hann að meta það þá
Margrét Elín Arnarsdóttir, 3.3.2009 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.