8.3.2009 | 15:35
Frábært viðtal hjá Agli
Mikið líst mér vel á það sem hún Eva Joly sagði. Um þörfina á erlendum sérfræðingum og það að rannsókn væri nauðsyn. Hér er smá brot úr stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar sem er næstum það sama og Eva sagði "
Trúverðug rannsókn undir stjórn og á ábyrgð óháðra erlendra sérfræðinga á íslenska efnahagshruninu verði hrundið af stað og fari fram fyrir opnum tjöldum. Frysta eignir grunaðra auðmanna STRAX meðan á rannsókn stendur
1. Tafarlaust verði sett í gang opinber rannsókn undir stjórn erlendra sérfræðinga á hruni íslenska efnahagskerfisins. Samhliða því verða sett afturvirk lög sem leyfa ógildingu allra fjármálagerninga undanfarinna tveggja ára þ.m.t. gerninga skilanefnda bankanna, og í undantekningartilfellum lengra aftur í tíma ef sýnt er að um óeðlilega gjörninga hafi verið að ræða þar sem félag og/eða eigandur þess hafi verið með þeim hætti leitt af sér skaða fyrir íslenskt efnahagslíf. Í þeim tilfellum verður ákvæði hlutafélagalaga um takmarkaða ábyrgð eigenda fellt niður.
Lögfest verði fagleg, gegnsæ og réttlát stjórnsýsla" Alla stefnuskrána má lesa hér. http://www.borgarahreyfingin.is/?page_id=6 Ég gekk í borgarahreyfinguna í dag, og er stolt af því. Ein pólitísk
Joly: Leita þarf til erlendra sérfræðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Jóna.
Það er margt gott í þessu og ég tala nú ekki um sanngjarnt og eðlilegt.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 15:41
ég vil helst fá þessa konu hingað
Hólmdís Hjartardóttir, 8.3.2009 kl. 15:58
Ertu komin á lista Jóna?
Sigrún Jónsdóttir, 8.3.2009 kl. 21:40
Ég er allavega kátur með að Borgarahreyfingin ætlar aldrei aldrei aldrei í samstarf með Sjálfstæðismönnum ...
Knús á þig Borgarahreyfingarstuðningsskott ..
Tiger, 8.3.2009 kl. 22:46
Sigrún ég hef ekki tíma til þess að vera á lista.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.3.2009 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.