8.4.2009 | 02:12
Er ekki hægt að reka Sigmund?
Þá er ég að tala um Sigmund, nýja formann framsóknar sem birtist mér alltaf þegar ég fer á mbl.is. Það fyrsta sem opnast á síðunni er andlitið á Sigmundi. Svipað gerist þegar ég fer á visir.is. Ég er búin að fá ógeð á manninum. Svo hef ég verið að spá í það hvað það kosti að vera með svona auglýsingar á forsíðum netblaðanna. Er þetta svona ódýrt að fá auglýsingu á forsíðunni eða er maðurinn svona ríkur? Ég vil láta reka manninn af forsíðunni, er hægt að kaupa sig frá því að sjá andlitið á honum í hvert skipti sem ég opna uppáhaldssíðuna mína? Ein pirruð
Var rekin vegna þjóðernis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.