18.4.2009 | 03:52
Ótrúleg söngkona
Þegar maður sér hana fyrst dettur manni í hug, gömul amma frá Skotlandi. Svo segir sagan að hún sé piparjónka, og hafi aldrei verið kysst. Hversu ólíklegt er þetta ævintýri? Þegar ég sá hana ganga inn á sviðið í hallærislega gamla kjólnum í háhælaskóm, með gamaldags lagningu í hárinu. Hugsaði ég en hallærislegt atriði, og skoskan hennar var svona eins og maður heyrir á götu í Glasgow. Svo byrjaði hún að syngja og hún söng eins og engill. Ég bara verð að segja það, manneskjan lítur út eins og amma, allavega hélt ég að hún væri á aldur við mömmu mína. Svo var hún yngri en ég. Ég á eftir að hlusta á hana oftar, og sjá hana hjá Oprah. Vá þvílíkir hæfileikar.
Af stjörnunni Boyle | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
já einmitt, hún er líka yngri en ég - svona gamaldags.
Sigrún Óskars, 18.4.2009 kl. 16:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.