25.4.2009 | 03:12
Ég hef brýnt fyrir börnunum mínum að kjósa
Ég er móðir 6 barna, ég hef alltaf brýnt fyrir börnunum mínum að það sé skylda þeirra að nota kosningaréttinn. Ég hef reynt að útskýra fyrir þeim að kosningarréttur sé ekki sjálfsagður. Það að búa í lýðveldisþjóðfélagi séu forréttindi. Það er skylda kosningabærra manna/kvenna að nota atkvæði sitt samkvæmt sannfæringu sinni. Ég á fjórar dætur sem hafa kosningarrétt og ætla tvær þeirra að kjósa það sama og ég. X-o fyrir okkur þrjár. Hinar tvær ætla að kjósa Vinstri Græna. Ég er stolt af því að hafa haft þau áhrif á dætur mínar að þær ætli allar að kjósa. X-O Þjóðin á þing er mitt framboð í ár, ég kýs ekki án þess að kynna mér málin fyrst. Ein ábyrg móðir, sem kýs Jafnrétti, sanngirni og réttlæti..
Kjörstaðir opnaðir klukkan 9 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Helgin verður söguleg
Hólmdís Hjartardóttir, 25.4.2009 kl. 03:22
satt hjá þér - við verðum að nýta okkur kosningaréttinn. Eigðu góðan dag
Sigrún Óskars, 25.4.2009 kl. 09:42
Knús knús og ljúfar kveðjur :0)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:27
Góðan kosningadag.Ég ætla að nýta mér þann rétt minn að kjósa ekki í þessum kosningum búin að kynna mér mjög vel hvað er boðið uppá en því miður ekkert atkvæði frá mér.Kveðja
gaddur, 25.4.2009 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.