8.6.2009 | 19:56
Framvísun kvittunar skilyrði
Ég er ein af þeim sem keyptu bensín á okurverðinu, en vegna pappírssparnaðar prentaði ég ekki út kvittun. Ég er að reyna að vernda náttúruna með pappírssparnaði. Afhverju er ekki hægt að skoða gögn hjá söluaðilanum, og endurgreiða mismuninn inn á sama kort og notað var við bensínkaupin. Þeir ætla að stela þessu með skriffinnsku!! Á tækniöld er þetta skrýtið að þurfa að fylla út blað og skila inn kvittun líka.
Skeljungur og Orkan endurgreiða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér Jóna,ég tek aldrei kvittanir,en maður notar kort,og það ætti að duga,en kannski maður breyti þessu,eftir þessa uppákomu,og taka alltaf kvittanir,en ég styð tillögu Jónu. kær kveðja. konungur þjóðveganna.
Jóhannes Guðnason, 8.6.2009 kl. 20:02
Þú getur fengið útprentun hjá bankanum á notkun á kortinu og væntanlega framvísað slíku.
Haukur Skúlason, 8.6.2009 kl. 20:02
Ég kaupi allt mitt bensín með orkukorti, sem Orkan gefur út, það ættu að vera hæg heimatökin að leiðrétta allar færslur á umræddu tímabili.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.6.2009 kl. 20:06
ef þeir rengja þig,getur þú líka bent á að þeir hafi myndavélar á planinu þar sem þeir sjá bílnúmerið,nema það virki bara þegar verið er að stela frá þeim...
zappa (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 23:00
Ég veit hvernig nýting skóganna í Finnlandi er, ég hef farið til Finnlands margsinnis. Mér finnst samt óþarfi að bruðla með pappírinn.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.6.2009 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.