9.6.2009 | 00:13
Fólkið sem tók kúlulánin leggur fram þingsályktunartillögu
Á meðan SjálfsstæðisFLokkurinn er með fólk í sínum þingmannahóp sem tók kúlulán er ekkert sem kemur frá þeim trúverðugt. Mér finnst að allir sem tóku kúlulán, hafi verið þáttakendur í aðdraganda hrunsins og í flokki með útrásarvíkingunum. Þeir eru spillingarliðið. Það er náttúrulega bara mín skoðun.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jóna Kolbrún, eru að fíflast, eða bara að bulla.
Sigurður Þorsteinsson, 9.6.2009 kl. 00:26
Í þetta skiptið er ég ekki að fíflast. Og mér finnst ekki bull að minnast á það að þingmenn hafi tekið kúlulán.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.6.2009 kl. 00:48
Ég skil ekki hvers vegna allar viðvörunarbjöllur glumdu þegar ég las tillögur kúlufólksins og vina þeirra.
Arinbjörn Kúld, 9.6.2009 kl. 01:20
Jóna nú veit ég ekki hvaða þingmenn hafa tekið en það hefur fólk úr öllum flokkum og stéttum gert. Enda ráðlögðu bæði bankarnir og fjármögnunarfyrirtækin t.d. vegna bílakaupa slíkt. Mig minnir að fram hafi komið að Björgvin Sigurðsson hafi tekið eitt slíkt, en það hafa örugglega fleiri Alþingismenn gert. Tek þetta þá sem bull vegna þekkingarleysis hjá þér.
Sigurður Þorsteinsson, 9.6.2009 kl. 01:28
Þorgerður Kartín( ásamt eiginmanni sínum) þó hún fylgist ekki með því hvað eiginmaðurinn er að bralla, Tryggvi þór Herbertsson. Þetta eru tveir sem ég man eftir í augnablikinu.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.6.2009 kl. 01:38
Farðu að sofa
Sigurður Þorsteinsson, 9.6.2009 kl. 01:51
Takk fyrir. Það er langt síðan mér var sagt að fara að sofa síðast.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.6.2009 kl. 01:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.