10.7.2009 | 01:58
Kastar steinum úr glerhúsi
Bjarni Benediktsson á ekkert með það að krefja einn eða neinn um afsökunarbeiðni. Hann á að biðjast afsökunar á því að vera þingmaður SjálftökuFLokksins. Hann á að biðja þjóðina afsökunar fyrir hönd SjálftökuFLokksins, sem skammtaði sér og sínum betur.
Össur Skarphéðinsson á að sjá sóma sinn í því að segja af sér fyrir stórkostleg embættisafglöp.
Fór fram á afsökunarbeiðni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já Jóna, gríðarlega þreytandi og lágkúrulegt þegar skúrkarnir ganga í klaustur, og messa svo yfir fórnarlömbum skúrkaháttar síns flokks.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.7.2009 kl. 02:08
Heil og sæl; Jóna Kolbrún - og aðrir góðir spjallvinir mínir !
Bjarni Benediktsson; er sami drullu sokkurinn - og glæpa flokka leiðtogarnir, sem með völdin fara, nú um stundir.
Svo; einfalt er það, gott fólk !
Punktur !!!
Með beztu kveðjum; sem jafnan /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 02:37
Er ekki óþarfi að "drulla" yfir alla þó svo að fólk sé í Sjálfstæðisflokknum
Jón Snæbjörnsson, 10.7.2009 kl. 08:11
alveg rétt það-það sem við nú horfum uppá nefnir kaninn svo skemmtilega "same old shit" ég veit ekki til að góð þýðing sé til yfir það...
zappa (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 09:18
Tek undir með Zappa.
Arinbjörn Kúld, 10.7.2009 kl. 10:13
Kvitta undir færsluna. Margt er skrítið. Bjarni var stjórnarformaður Neins, olíufélagsins sem á að vera í harðri samkeppni við Skeljung. Með Bjarna í stjórn var Kögurkóngurinn, faðir formanns Framsóknarflokksins. Stuðningsfélag kosningaframboðs Bjarna er skráð heima hjá forstjóra Skeljungs, aðal keppinautar Neins í orði. Eitthvað virðist vera öðtu vísi á borði. Eða undir borði.
Jens Guð, 10.7.2009 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.