14.9.2009 | 02:00
Barack Obama á réttri leið
Að þetta frammíkall þingmannsins Joe Wilson sé aðalfréttin í þessu máli er skrítið fréttamat. Barack Obama er að reyna að bæta heilbrigðiskerfið í Bandaríkjum Norður Ameríku. Hann ætlar að reyna að tryggja öllum löglegum íbúum BNA aðgang að heilbrigðisþjónustu, óháð fjárhag. Ég á ekki von á því að hann fái þetta samþykkt í þinginu þar.
Ég horfði á mynd Michael Moore um bandaríska heilbrigðiskerfið fyrir nokkrum árum og veit ég að þörf er á algjörlega nýrri hugsun og nálgun þar. Kannski getur Barack Obama stuðlað að breytingum til góðs í heilbrigðiskerfinu þar, en þá þarf hann að nálgast hina "norrænu velferðarstjórn eins og finnst á norðurlöndunum" hérna er norræna velferðarstjórnin á undanhaldi, í boði sitjandi vinstri stjórnar. Til hamingju Jóhanna og Steingrímur. Til hamingju með stuðning ykkar við fjármálaelítuna og fjármagnseigendurna. Ég vona að þessi stjórn verði felld í vetur og stjórn vinveitt heimilunum og fjölskyldunum í landinu komist að völdum.
Hart deilt um frammíkall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hér er góður þáttur um heilbrigðiskerifð í USA http://www.youtube.com/watch?v=aEXFUbSbg1I
Landið (IP-tala skráð) 14.9.2009 kl. 06:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.