Góðar fréttir af lögreglunni

Loksins eru góðar fréttir af lögreglunni, það er frábært að hægt sé að fjölga lögreglumönnum.  Sérstaklega á þessum tíma þegar niðurskurður og hagræðingaraðgerðir eru svona víða í þjóðfélaginu. 

 Ég undrast hversu vel lögreglan hefur staðið sig í allskonar fíkniefnamálum og öðrum aðkallandi glæpamálum.  Aldrei hafa jafn margir grunaðir glæpamenn verið í gæsluvarðhaldi, og aldrei hafa jafn margir verið í fangelsunum. 

Ég er fylgjandi því að menn sem eru dæmdir fyrir smáglæpi fái að vinna samfélagsþjónustuverkefni í stað afplánunar í fangelsum landsins. 

Svo er þörf á því að dæma fíkniefnaneytendur í viðeigandi meðferð, það hjálpar fíkniefnaneytendum ekki að dæma þá í fangelsi.  Önnur úrræði verða að vera til. 


mbl.is Auglýst eftir lögreglumönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér með að fíkla á ekki að setja í fangelsi, heldur lokaða meðferðarstofnun, þar sem þeim er hjálpar til að losna við fíknina og leiðbeiningar um til að geta lifað í þessum heimi.  Og það er gott mál að fá fleiri lögreglumenn.  Það sem vantar í dag er sennilega virkt innra eftirlit svo brútalarnir gangi ekki lausum hala í búningum sem veit þeim tækifæri til að berja og vera stórir karlar.  Það verður að vera hægt að bera óskorað traust til löglreglunnar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.11.2009 kl. 11:41

2 Smámynd:

Sammála ykkur báðum Jóna Kolbrún og Ásthildur.

, 20.11.2009 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband