Ég vil vita hver á Arion banka

Eignarhald Arion banka virðist vera á huldu.  Hverjir eru þessir kröfuhafar? 

Stjórnarformaður Arion bankans virðist hafa helgað sig setum í stjórnum fyrirtækja í tæpan áratug, Monica Caneman.  Hvaðan kemur sú kona? 

Leyndarmál eru á hverju strái, lögmæti ýmissa aðgerða í kringum hrunið virðist mælt í því hversu mikla peninga þú átt.  Ef þú þekkir rétta fólkið kemstu upp með hvað sem er.  Ef þú er bara meðalJón er gengið að eignum þínum fyrir nokkur hundruð þúsunda króna vanskil.  Ef þú er rétt tengdur, færðu afskriftir fyrir milljarða, og fyrirtækið sem þú settir á hausinn á silfurfati.

Svo er annað mál sem mér finnst allt of margir hafa komist upp með, sem er kennitöluflakk.  Þú ert svindlari, lýgur og stelur eignalaus.  Býrð í einbýlishúsi í rándýru hverfi, húsið er skráð á maka eða afkomanda þinn.  Þú getur gert þetta aftur og aftur.  Kennitöluflakk hefur verið með samþykki stjórnvalda undanfarna áratugi og engin stjórn hefur haft áhuga á því að banna kennitöluflakk.  Það finnst mér svínarí. 


mbl.is Ný stjórn Arion banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ég vil líka vita hvar á Arion?

Sigurður Haraldsson, 19.3.2010 kl. 02:47

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Frum niðurá Austurvöll og"SPYRJUM"

Helga Kristjánsdóttir, 19.3.2010 kl. 13:31

3 identicon

Ég vil nýja ónotaða kennitölu.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 23:22

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Austurvöllur er vígvöllurinn það mætti vera þar oftar á meðan alþingi er í gangi.

Sigurður Haraldsson, 20.3.2010 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband