Færsluflokkur: Dægurmál

Ég hef verið þjófkennd tvisvar á sama degi

Fyrst í Áfengisverslun Ríkisins hérna á Seltjarnarnesi, ég skrapp seinnipartinn og keypti mér nokkra bjóra á gamla verðinu. Þegar ég er að ganga út úr áfengisversluninni, eftir að hafa borgað bjórinn, gengur maður að mér og biður mig að koma með sér...

Virt lögfræðistofa

Segir að kynning hafi farið fram á lögfræðilegum vafamálum vegna IceSlave við Össur Skarphéðinsson. Össur kemur af fjöllum, hvað er í gangi? Er Össur í óminnsileik? Eða lýgur þessi fræga lögfræðistofa Mishcon De Reya? Hvað græðir þessi lögmannsstofa á...

Yfirsópsnefndin

Hefur ákveðið að sópa öllu undir teppi, með setningu þessarrar níu manna þingnefndar. Ég vil fá skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis birta án ritskoðunar.

Nei, nei, nei

Ég vona að Íslenskir þingmenn hafni þessu IceSlave frumvarpi, barnanna okkar og barnabarnanna okkar vegna. Ásmundur, Lilja, Ögmundur, Atli, "Þráinn" ég hef Þráin innan gæsalappa vegna óvissu um hans hug. Það má aldrei samþykkja IceSlave nema að öll kurl...

Hvunndagshetja lætur lífið

Hann Guðmundur Sesar var enginn venjulegur maður. Hann er einn af íslensku hvunndagshetjunum, hann barðist við handrukkara og kerfið. Hann hætti eigin lífi þegar hann ákvað fyrir nokkrum árum að berjast við handrukkara og neita að borga fíkniefnaskuldir,...

Það er órækt og niðurníðsla í VG

Flokkurinn hans Steingríms hefur sett niður. Hann gekk í bandalag með "búskussanum", þess vegna er allt í upplausn í þjóðfélaginu í dag. Hann vill samþykkja IceSlave án þess að skoða öll gögn sem liggja fyrir í dag, hann hunsar lögfræðiálit virtrar...

Hverra erinda gengur hann Steingrímur?

Ég er löngu hætt að skilja embættisfærslur hans Steingríms, ætli útlendingar hafi ráðið hann á laun til þess að gæta hagsmuna þeirra? Hann virðist algjörlega gallharður á því að við, almenningur á Íslandi höfum brotið stórlega af okkur og að okkar sé...

Bloggpása

Ég er að hugsa um að taka mér frí frá blogginu fram yfir jól, ég er í engu skapi til þess að blogga þessa dagana. Ég ætla líka að minnka það að lesa og horfa á fréttir og reyna að njóta jólanna með börnunum mínum. Ég óska ykkur öllum gleðilegra...

Saga úr vinnunni minni

Á mánudagskvöldið var ég í vinnunni minni á barnum, það var frekar rólegt á Laugaveginum það kvöld. Þá kom á barinn Breti, hann var frekar hress og mjög skemmtilegur. Hann var kominn til Íslands til þess að skoða Norðurljósin. Ekki voru aðstæður til...

Hjásetur

Mér finnst að alþingismenn séu ekki að vinna vinnuna sína þegar þeir sitja hjá, afhverju geta þeir ekki bara samþykkt þau frumvörp sem þeir eru ekki á móti? Mér finnst þetta skrýtin vinnubrögð. Smá hugleiðing um hjásetu, að sitja hjá þegar atkvæði eru...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband