Færsluflokkur: Dægurmál

Ég er ennþá að bíða

Hvað ætli ég þurfi að bíða lengi eftir leka úr lánabók Landsbankans? Wikileak stóð sig vel þegar lánabók Kb banka lak þangað, ég er ennþá að bíða eftir leka úr Landsbankanum, svo þarf einhver góðviljaður að leka lánabók Glitnis. Ég bíð eftir að allt...

Húsið er ekki bara enduruppbyggt

Það er líka búið að byggja stórt glerhýsi sem er nýbygging. Húsið lítur vel út frá niðurgröfnu porti sem er austan megin. Að vestan er búið að byggja risastórt glerhús yfir stiga. Mér finnst sú bygging ekki hæfa húsinu, sú bygging sést vel á myndinni sem...

Kannski þarf síbrotagæslu á konuna?

Mér virðist að brotavilji þessarar konu sé augljós, þótt hún sé ekki nafngreind í þessarri frétt. Mér fannst skrítið hvernig hún virtist ekkert skammast sín, í myndum í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna. Hún sprangaði um í að mér virtist rándýrum...

Góður er hann þessi ljósmyndari

Mér finnst þetta frekar óhugnanlegt brot hjá Frammaranum, það má ekki gera svona í íþróttum. Þetta getur valdið miklum meiðslum hjá brotaþolanum. Gróttuliðið hefur verið að standa sig vel undanfarnar vikur. Grótta er náttúrulega liðið okkar sem búum á...

Greiðsluþrot eða ekki?

Ég verð að segja það að ég treysti orðum Þórs Saari hagfræðings betur en orðum Jóhönnu flugfreyju og Steingríms sem er með einhverja jarðfræðimenntun. Það er eitthvað undarlegt í gangi í þjóðfélaginu, annað en fullt tungl. Það var ótrúlega erfitt í...

Yfirlætisleg hegðun Steingríms

Ég á varla orð yfir það hann Steingrímur er orðinn drambsamur, að láta hafa svona eftir sér ( Þetta er alveg yndislega, ótrúlega ómerkilegt. Það er alveg sama hvernig maður reynir að fara yfir málin, það er umsvifalaust komið og reynt að blása það út og...

Hvernig eru eftirlaunakjörin hjá honum?

Loksins hættir þessi maður, ég er smá forvitin um það hversu mikið hann hefur kostað þjóðfélagið sem bankastjóri Kaupþings banka? Svo er ég smá forvitin hvað við þurfum að borga honum mikið í starfslokasamning og eftirlaun sem bankastjóri? Hversu lengi...

Mér datt í hug vísa

Farðu að sofa blessað barnið smáa, brúkaðu ekki minnsta fjandans þráa. Haltu kjafti hlýddu og vertu góður, heiðra skaltu föður þinn og móður. Þannig finnst mér Steingrímur tala til þjóðarinnar, við eigum að hafa okkur hæg og halda...

Sparnaður

Ég er með nokkrar hugmyndir um það hvernig spara má. Fyrst búið er að þrengja meira en nóg að heimilum landsins, hvernig væri að skera niður í stjórnsýslunni? Gera flatann niðurskurð á nefndum og nefndarlaunum um t.d 50% Hvernig væri að skera niður...

Best að vera heima um jólin

Það er besta vörnin við innbrotum að vera heima hjá sér. Þessi 7 ráð sem Jyllandspósturinn birtir til þess að hjálpa fólki að tryggja húsin sín á meðan það er í jólafríi eru góð og gild. Ég er frekar heimakær þegar ég er ekki að vinna, en þegar enginn er...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband