Mér finnst Sigurjón trúverðugari en Björn, hvað finnst þér?

Hérna er kjarnastefna Dögunar í heild. "

Kjarnastefna Dögunar

Dögun - samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem bjóða munu fram í næstu alþingiskosningum og leggja áherslu á brýna hagsmuni almennings, hafa sammælst um neðangreindan stefnuramma. Öllum sem fallast á forgang þessara mála er boðið til þátttöku. Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög.

Öflugar aðgerðir í þágu heimila

Leysa verður skuldavanda heimilanna með róttækum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu. Leita skal lausna á forsendum lántakandans frekar en lánveitandans. Við viljum tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum og almenna leiðréttingu húsnæðislána. Þá viljum við að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest og að vextir í landinu verði hóflegir.

Lýðræðisumbætur - Ný stjórnarskrá

Ný stjórnarskrá fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Við teljum frumvarp Stjórnlagaráðs mikilvægt skref í átt til virkara lýðræðis og að þjóðin eigi að fá að kjósa um það. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja tafarlaust með lögum eftirfarandi rétt almennings: Persónukjör samhliða flokkakjöri. Kjósendur hafi rétt til að kjósa framboðslista eða einstaklinga, jafnvel þvert á framboðslista. Þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að atkvæðagreiðslu um sameiginleg hagsmunamál svæðisins óski 10% kjósenda þess. Sjálfstæði sveitarfélaga verði aukið og nálægðarreglan í heiðri höfð. Ákvarðanir verði teknar á því stjórnsýslustigi sem næst er málinu sjálfu.

Skipan auðlindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða

Orkufyrirtæki verði í eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og nýting allra náttúruauðlinda til sjávar og sveita skal vera sjálfbær. Auk þeirra breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift Stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan auðlindamála er nauðsynlegt að stokka upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.

Siðvæðing stjórnsýslu og fjármálakerfis

Bæta ber siðferði og auka gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og fjármálakerfinu. Nauðsynlegt er að þessir aðilar vinni eftir skýrum siðareglum. Lög verði yfirfarin með því markmiði að fyrirbyggja spillingu og herða viðurlög við henni. Tryggður verði aðgangur almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af. Þann aðgang má aðeins takmarka með lögum í lýðræðislegum tilgangi, svo sem til að tryggja persónuvernd. Komið verði í veg fyrir óeðlileg völd sérhagsmunaaðila og skilið á milli stjórnmála og viðskiptalífs. Bankaleynd skal afnumin að undanskildu því sem lög um persónuvernd kveða á um. Tryggt verði að eftirlitsstofnanir ásamt efnahags og viðskiptanefnd Alþingis hafi ávalt fullar rannsóknarheimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum.

Lagalegt réttlæti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið

Gera þarf ráðstafanir til að endurheimta illa fengið fé aðalgerenda í svonefndri útrás og höfða skaðabótamál á hendur þeim. Samfélag þar sem glæpir borga sig er ekki hægt að sætta sig við. Ganga þarf sérstaklega eftir því að sinnt verði brýnum rannsóknarefnum sem ætla má að hinir gamalgrónu stjórnmálaflokkar séu tregir til að láta rannsaka. Tryggja þarf góð starfsskilyrði sérstaks saksóknara og annarra sem koma að rannsókn efnahagsbrota í tengslum við Hrunið. Almenningur hafi aðgang að öllum upplýsingum sem rannsakendur Hrunsins afla, enda séu ekki sérstök rök fyrir því að halda þeim leyndum. Öllum skal gert kleift að leita réttar sins og verjast fyrir dómstólum, óháð efnahag.

Evrópusambandið

Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði."

Ég hef trú á þessu nýja stjórnmálaafli, þar er kominn góður valmöguleiki gegn fjórflokkinum. 


mbl.is Segir Sigurjón hafa stutt klíkuskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Á þessum tímum treysti ég engum nema gömlu flokkunum. Enginn þeirra nýju vill afdráttarlaust hafna eða stoppa E-aðild.það er aumingjalegt. Það ætti líka að hafna nýrri stjórnarskrá,sem ólöglegt stjórnlagaráð er að möndla með,það á sem sagt að láta nýðingana sem vildu láta okkur borga Icesave,hvað sem það kostaði halda ólögum áfram. Ég ætla að byrja á fullu að vinna gegn þessum nýju,þar er bara samsuða frá Stgr+Jóh.

Helga Kristjánsdóttir, 20.3.2012 kl. 06:08

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Mér finnst Björn Bjarnason ekki hafa ráð á að sverta ný framboð, sem ógna rótgróna gamla spillingarveldinu á Íslandi. Þess vegna fellur þessa gagnrýni hans á Sigurjón Þórðarson um sjálfa sig, og endursendist vinsamlega til föðurhúsanna.

Enginn er fullkominn, sem betur fer. Enda er enginn að fara fram á það, heldur einungis svo sjálfsögð atriði sem réttlæti, sanngirni og lýðræði, og það er ekki til of mikils ætlast.

Það hafa líklega flestir í nýjum framboðum gert eitthvað í fortíðinni, sem strangt til tekið má flokka sem "rangt". Annað væri óeðlilegt og nánast ofurmannlegt. Í stjórnsýslunni á Íslandi var í marga áratugi staðinn vörður um fársjúkt samfélagsumhverfi, sem krafðist hreinlega af almenningi, að hér væri allt byggt upp og litað af spillingu, mannréttindabrotum, stjórnarskrárbrotum, mannorðsmorðum og dómsmorðum. Þetta er ekki fögur upptalning, en hún er því miður sönn.

Þeir sem stóðu að Sjálfstæðisflokknum í áratugi sköpuðu rótina að þessu fársjúka samfélags-umhverfi, með dyggri aðstoð frá svikulum gömlum og spilltum stjórnmálamönnum í öðrum flokkum. Það er myndin sem blasir við almenningi. Ef hlutirnir eiga sér réttlætanlega skýringu, þá hefur sú skýring verið þögguð niður í yfir hálfa öld.

Nú skal breyta samfélaginu og umhverfinu í samræmi við mannréttindi. Ég óska þeim farsældar og velgengni sem vilja leggja slíku þjóðþrifa-verki lið í nýju framboðunum. Það er mikið verk að byggja upp réttlæti í svona rótgróinni spilltu og óréttlátu umhverfi, og það mun takast, og með samtakamætti fjöldans.

Ágreiningur um ýmis mál eru einungis verkefni sem verða leyst með opinni, réttlátri, sanngjarnri og lýðræðislegri umræðu, og ekki síst með siðferðislega heilbrigðum rökum.

Alþingi götunnar mun bara styrkjast og vaxa, öllum til góðs. Ekkert getur stoppað viljann og heiðarlega hugsjón. Það er raunveruleikinn.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.3.2012 kl. 10:17

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Jóna Kolbrún, ég þekki ágætlega til Sigurjóns, sem er vel heima í stjórnmálum og vill réttlæti, líkt og Frjálslyndi flokkurinn barðist fyrir á sínum tíma.  Björn er gjörsamlega fastur í Baugshatri, að það er allt túlkað sem svo.  Þegar Björn er í slíkum ham, þá lokar maður einfaldlega eyrunum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2012 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband