4.6.2008 | 01:09
Ég hefði viljað vita af þessu
Þá hefði ég skroppið í Keflavíkina, til að sjá þá aftur. Ég man eftir flugsýningum þeirra í gamla daga, hérna í Reykjavík. Ekki veit ég hversu oft þeir komu og sýndu, en ég sá þá allavega einu sinni. Ég hef alltaf verið hrifin af þotum, ég ólst upp í nágrenni flugvallarins í Reykjavík. Ég man ennþá hvað drunurnar voru æðislegar, þegar undirbúningur flugtaks við flugbrautarenda og allt sett í botn. Ég sakna þess að heyra ekki oftar í þotum.
![]() |
Rauðu örvarnar komu við á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eigðu ljúfa nótt mín kæra og hafðu góðan dag á morgun!
Tiger, 4.6.2008 kl. 02:00
Sömuleiðis. góða nótt og sofðu rótt, ég gái alltaf ef ég heyri í flugvélum, hvernig vél það sé og ég bý þar sem allt aðflug að austur/vestur brautinni fer framhjá stofuglugganum mínum. Mér finnst að flugvélar í dag séu of hljóðlátar
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.6.2008 kl. 02:04
Knús knús og yndislegar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.6.2008 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.