26.9.2008 | 01:10
Aumingja maðurinn
Ég fékk E-mail frá vinkonu minni í Seinäjoki í gær og var hún að segja mér frá því að þrjár stúlkur sem eru nágrannar hennar létust í þessari árás í Finnlandi. Það er þjóðarsorg í Finnlandi núna. Í kvöld kom Finni á barinn minn og spjölluðum við lengi saman, þar á meðal þetta fjöldamorð. Svo fór hann að segja við mig að finnskan mín væri betri en finnskan hjá leiðsögumanninum/konunni í ferðinni sem hann fór í gær. Ég var nú frekar stolt af því, hann hældi mér fyrir framburðinn. Því miður flýgur þessi maður til Finnlands í fyrramálið, hann hefði alveg mátt reka nefið inn á barinn okkar nokkrum dögum fyrr. Ein stolt
Umbreyttist við andlát bróður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
sko þig.
Hólmdís Hjartardóttir, 26.9.2008 kl. 01:18
Þetta er alveg hræðilegt þarna í Finnlandi.
Gaman að þú fáir svona gott komment á finnskuna.
Kveðja á þig
Einar Örn Einarsson, 26.9.2008 kl. 01:44
Já þetta er alveg hræðilega sorglegt sem gekk á í Finnlandi.
Varstu ekki montin að heyra þetta með finnskuna ?
Linda litla, 26.9.2008 kl. 04:23
Ánægð með þig kona. Get sko vel trúað því að þetta hafi verið smá næring fyrir sálartetrið að heyra þetta.
Mikið afskaplega yrði ég nú þakklát Jóna mín ef þú gætir talað við mág þinn fyrir mig. Því miður hefur ekkert komið út úr þessu enn sem komið er, en það mátti reyna þetta.
Knús á þig elsku vinkona.
Tína, 26.9.2008 kl. 07:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.