23.1.2009 | 02:42
Börnin læra það sem fyrir þeim er haft.
Ég fékk sendann póst frá skóla örverpisins í gær, alveg frábæran póst og lýsir hann ástandinu í þjóðfélaginu vel. "Margir nemendur í 1.-6. bekk eru óánægðir með að það verði skóladagur á öskudag. Hér hafa verið öflug mótmæli, kröfugöngur og undirskriftalistar. Það er ljóst að einhvers staðar hafa þau lært að mótmæla! Ástæða þess að ákveðið var að hafa skóladag á öskudegi er sú að oft hefur þessi dagur skapað vandræði fyrir foreldra." Ég var nú frekar hrifin af krökkunum okkar að láta heyra í sér. Öskudagurinn hefur verið frídagur í skólunum, núna er hann skóladagur. Mér var skemmt þegar ég las þennan póst, og brosti í kampinn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.