Margföld fylgisaukning

Borgarahreyfingin hefur 6 faldað fylgi sitt á einni viku, okkur eru greinilega allir vegir færir.  Ég gekk til liðs við Borgarahreyfinguna þann 8 mars.  Þá var hún varla komin á koppinn.  Núna er Borgarahreyfingin orðin góður valkostur fyrir þá sem fylgja ekki fjórflokkunum lengur.  Allir sem eru ennþá í stjórnmálakreppu ættu að kynna sér stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar.  Minni réttlætiskennd hefur verið misboðið undanfarna mánuði, eina leiðin sem ég sé til þess að breyta ástandinu í þjóðfélaginu til góðs er að kjósa X-O.  
mbl.is Ný könnun: Stjórnarflokkarnir fengju meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Já halló!

Þetta er nákvæmlega liðið sem er hálfu skrefi frá því að fá atkvæði mitt í stað VG þetta árið.  Gangi ykkur vel að sannfæra fólk um að ykkar atkvæði fari ekki í það eitt að koma fleiri Sjálfstæðismönnum á þing eins og Íslandshreyfingin hér um árið sem hlaut dyggan stuðning Sjallafjölmiðlanna við að klípa fylgi af VG og Samfó.

Rúnar Þór Þórarinsson, 20.3.2009 kl. 05:26

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þar sem ég er fyrrverandi kjósandi sjallanna, hlýtur þetta að vera þeirra tap

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.3.2009 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband