17.10.2009 | 01:18
Sterkar vísbendingar?
Er það ekki staðreynd að glæpaklíkur frá Austur-Evrópu eru starfræktar hérna á Íslandi og hafa verið í nokkur ár? Mér finnast meira en sterkar vísbendingar vera á þessari glæpastarfsemi, samanber innbrotaglæpaflokkinn sem handtekinn var um daginn. Skipulagðir glæpir Austur-Evrópuklíkunnar hafa verið að færast í aukana allt þetta ár.
Lögreglumenn verða fyrir alvarlegum árásum, menn eru handteknir og síðan sleppt út á göturnar aftur. Og ætli þeir þyggi ekki bætur annaðhvort almannatryggingabætur eða atvinnuleysisbætur? Hvers vegna er þessu fólki ekki vísað úr landi? Þurfum við á því að halda hérna á litla Íslandi að hafa erlendar glæpaklíkur á framfæri íslenskra skattgreiðenda?
Ætli við værum ekki betur sett ef við segðum okkur úr Schengen samkomulaginu? Er ekki því að kenna þessi glæpaalda Austur-Evrópu glæpaklíka?
Götuvændi stundað í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er sammála þér.
En það er vandlifað í henni veröld.
T.d. kannast ég við þá tilfinningu hjá mér að vera afar ósátt við múslima, vegna framkomu þeirra gagnvart konum. Á sama tíma hef ég fulla samúð með Palestínumönnum sem þurfa að lifa við áþján Ísraela, á sama tíma sem ég kaupi snyrtivörur og appelsínur af Ísraelum.
Ég hlýt að vera hinn eini sanni hræsnari.
En erlendar glæpaklíkur, mér lýst best á kæfa þær í fæðingu hér á landi, eins og þeir eru að reyna með Hells Angles.
Svo ég tali nú ekki um mansal, það er hræðilegt til þess að hugsa að þetta viðgangist á landinu okkar
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 17.10.2009 kl. 03:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.