16.11.2009 | 01:17
Íslenskukennsla er greinilega ekki góð nú til dags
Ég undraðist ýmsar málfarsvillur þegar ég las þessa frétt, sérstaklega þetta " Viðfangsefnið var óvenjulegt - nefnilega það að kenna feðrum að flétta dætrum sínum. " Mér er hætt að lítast á blikuna, svo er önnur hræðileg málfarsvilla í fyrirsögn fréttarinnar.
"Feður lærðu fléttun og greiðslu"
Hvernig væri að ráða blaðamenn sem eru allavega með grunnskólapróf í íslensku? Við lestur þessarrar fréttar sá ég hvergi nafn blaðamannsins sem skrifaði hana? Kannski er ég bara svona gamaldags að vilja lesa almennilega íslensku þegar ég les fréttir í íslensku dagblaði, þó það sé netútgáfa?
Feður lærðu fléttun og greiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
nefnilega það að kenna feðrum að flétta dætrum sínum.
þetta er málfræðilega að kenna að flétta dætrum sínum í hag. Það er í þágu þeirra svo sem dætrum er þágufalls form.
-un er ending sem oftast gefur til kynna athöfn sagnrótarinnar sem hún fylgir. Eða það að flétta. Sumum þykir þetta fornt mál.
Júlíus Björnsson, 16.11.2009 kl. 02:40
Ég er sammála þessu. Íslenskunni hrakar í samræmi við gæðin í fréttunum, fólk er hætt að skilja hvað er rétt eða rangt í málfarinu. Eftir höfðinu dansa limirnir.
Ekki að þeir sem skrifi fréttirnar séu slæmt fólk, það þarf bara hreinlega prófarkalesara á allar fréttirnar.
Jæja nú ætla ég að fara að flétta dæturini mínur.
Ólafur Þórðarson, 16.11.2009 kl. 02:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.