Eru þessir skjálftar í boði Orkuveitunnar?

Eða eru þetta venjulegir jarðskjálftar? 

Það er alltaf jafn óþægileg tilfinning þegar jarðskorpan hristist.

Ég vona að það verði svefnfriður í nótt.   


mbl.is Um þrjá stóra skjálfta að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein besta söngkona heimsins látin

Þetta eru vissulega sorgarfréttir að Whitney Houston sé látin aðeins 48 ára gömul.

Þetta ætti samt ekki að koma fólki á óvart, hún hefur verið í viðjum fíknar í 20 ár.

Hún hefur ekki verið að koma fram og syngja fyrir heimsbyggðina undanfarna áratugi.

Það er vissulega sorglegt þegar fólk fer svona með líf sitt, hún á dóttur sem hefur þurft að horfa uppá móður sína og föður líka glíma við alvarlega fíknisjúkdóma. 

Vonandi er barnið í góðum höndum núna...


mbl.is Whitney Houston látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Núna þegar í ljós er komið hversu mikið tap lífeyrissjóðanna var, ætlar einhver að mótmæla vegna þess?

Ég var að lesa almennilega samantekt um lífeyrissjóðina, mennina sem koma að stjórn þeirra og ýmsan annan fróðleik.

Lára Hanna tók sig til og bloggaði í tilefni skýrslunnar um lífeyrissjóðina ég vil hvetja fólk til þess að kynna sér málin. 

Hér er hlekkur á bloggið hennar Láru Hönnu    http://blog.eyjan.is/larahanna/   Það er alveg magnað að lesa sumt þarna á síðunni.. 


Hvað er fólk að æsa sig?

Er þetta ekki bara eins og útrásarvíkingarnir? 

Hvað þarf að fara að skoða þessa lífeyrissjóði?

Hvað kemur okkur almúganum við, það sem yfirburðafólkinu þykir sjálfsagt?

Þau áttu ábyggilega skilið að fara í laxveiði og allskonar boðsferðir um allan heim á kostnað okkar ræflanna sem samþykkjum allt sem þessu fólki dettur í hug.

Þetta fólk ber svo mikla ábyrgð, svo hefur það laun ábyggilega ekki undir milljón á mánuði og stritar ábyggilega fyrir hverri krónu.  NEI, ALDREI.

Svo er það ábyggilega á bílum sem okkur sem höldum þeim uppi höfum engin efni á , og ekki þurfa þau að borga bensínið sjálf?  SVÍNARÍ!!!

 Eða hvað heldur þú?

Er ekki komin tími á það að láta aðeins heyra í sér?

Síðast þegar ég mætti á mótmælafund í kulda og trekki mættu u.þ.b 30 manns.  

Ætli það komi fleiri næst?

Maður spyr sig....


mbl.is Munu skoða lífeyrissjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verðsamráð löglegt á Íslandi?

Maður hlýtur að spyrja sig þessarar spurningar þegar enn og aftur öll olíufélögin hækka verðið jafn mikið?

Hvar er samkeppnisráð?  Fær það borgað fyrir að líta framhjá svona samráði? 

Maður spyr sig, hversvegna samkeppnisstofnun er yfirhöfuð til? 

Er hún til, svo verðsamráð sé samþykkt af stjórnvöldum? 

Eða hver ræður ríkjum þarna? 

Þarf ekki að hreinsa til þarna?


mbl.is Hæsta bensínverð Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB, samtök fullvalda ríkja?

Eftir þessar nýjustu fréttir af yfirgangi ESB, hljóta ESB sinnar að spyrja sjálfa sig ýmissa spurninga?

Eða hvað finnst þér um þessa uppástungu Þjóðverja að ESB yfirtaki fjármál Grikklands? 

Ég vona að þessi frétt vekji ESB sinnaða Íslendinga af þyrnirósarsvefni.

ESB eru ekki samtök fullvalda ríkja, ESB eru nýju Sovét ríki Evrópu. 

Og það eru tvö ríki sem ráða öllu, Þýskaland og Frakkland.

Hin ríkin eru bara viljug fórnarlömb, alræðis.


mbl.is ESB taki yfir fjármál Grikkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrir áhugaverðir hlekkir

Á morgun verður haldinn borgarafundur um verðtrygginguna í Háskólabíó klukkan 20.00. 

Fyrsti hlekkurinn er á bloggið hennar Rakelar Sigurgeirsdóttur.

http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1218838/  

Svo  er áhugaverð færsla hérna um lánin okkar.

http://www.gagnauga.is/index.php?Fl=Frettir&ID=4760 

Og svo þetta blogg hjá Daða Ingólfssyni.

http://www.dv.is/blogg/ding/2012/1/22/talid-upp-tiu/


Ætli vitnalistinn hafi haft einhver áhrif á þessa kosningu?

Ég fann vitnalistann á annarri síðu áðan og lítur hann þannig út, með einni breytingu. 

Einn maður á listanum er látinn og er þar af leiðandi ekki lengur á listanum.

"

Tveir ráðherrar í núverandi ríkisstjórn eru á listanum en öll stjórnin á hrunárinu þarf að bera vitni þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Árni Mathiesen, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Einar Kristinn Guðfinsson, Kristján Möller og Björn Bjarnason.

Þá eru seðlabankastjórarnir fy...rrverandi, Davíð Oddsson og Ingimundur Friðriksson þarna einnig. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME og Jón Sigurðsson, þáverandi stjórnarformaður FME. Sturla Pálsson og Tryggvi Pálsson frá Seðlabankanum. Bolli Þór Bollason, Baldur Guðlaugsson og Jónína Lárusdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson. Þá eru þarna bankastjórar allra stóru bankanna, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristjánsson, Lárus Welding og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings." 

 Ég er ein af þeim sem skilja ekki viðsnúning Atla Gíslasonar, Ögmundar Jónassonar, Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, Lilju Mósesdóttur og Jóns Bjarnasonar.

Maður spyr sig hver raunverulega ástæðan sé? 

Endilega látið mig vita. 


 

mbl.is „Hafi þau skömm fyrir um aldur og ævi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því er öðruvísi farið hérna á Íslandi

Hérna eru skussarnir verðlaunaðir, þeir fá afskriftir, nýja skuldlausa kennitölu til þess að halda áfram að arðræna almenning, bankana í boði stjórnvalda og stjórnsýslunnar.

Hérna er það viðtekin venja að skussar fái allt upp í hendurnar, en litli maðurinn sem reynir að reka fyrirtæki þarf að keppa við þessa skussa sem aldrei borga skuldir. 

Svo eru það hinir sem skulda á eigin kennitölum, þeir eru að mér virðist aðal glæpalýðurinn í þessu þjóðfélagi. 

Þar er gengið að eignum, fólk borið út úr húsum sínum og þar koma stjórnvöld ekki til hjálpar, né stjórnsýslan. 

Viljum við virkilega lifa í svona spilltu þjóðfélagi?

Er ekki  kominn tími á nýja janúarbyltingu? 

Maður spyr sig...


mbl.is Bannað að koma að viðskiptum í 10 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ber ábyrgð á þessu?

Er forstjórinn ábyrgur fyrir þessum vinnubrögðum, eða skriffinni á skrifstofunni? 

Hvernig er það, á stofnunin ekki að vernda fólkið í landinu?

Þeir vildu ekki styggja Shell? 

Eru þetta ásættanleg vinnubrögð hjá ríkisstofnun? 

Skítt með fólkið, dýrin og landið, bara ef Shell þarf ekki að pönkast í svona eiturmálum?

Ætli einhver verði rekinn frá MAST? 

Maður spyr sig...


mbl.is Mikill álitshnekkir fyrir MAST
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband